
Raddskipanir og raddhringingar
Hægt er að stjórna símanum með raddskipunum og hringja með því að segja upphátt
nafn sem vistað er í tengiliðum.
Raddskipanir og raddhringingar fara eftir tungumálum. Raddkennsl eru ekki í boði fyrir
öll tungumál. Til að sjá hvaða tungumál eru í boði velurðu
Valmynd
>
Stillingar
>
Síma-stillingar
>
Stillingar tungumáls
>
Tungumál raddkennsla
. Veldu
tungumálið sem á að greina.
Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið í hávaðasömu umhverfi eða í
neyðartilvikum, því ætti ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar aðstæður.
20 Stillingar

Til að venja raddkennsl símans við rödd þína velurðu
Valmynd
>
Stillingar
>
Síma-
stillingar
>
Raddkennsl
>
Raddæfing
.
Til að gera raddskipun virka fyrir tiltekna aðgerð velurðu
Valmynd
>
Stillingar
>
Síma-
stillingar
>
Raddkennsl
>
Raddskipanir
, eiginleika og aðgerðina. gefur til kynna
að raddskipunin sé virk.
Til að gera raddskipunina virka velurðu
Bæta við
. Til að spila virku raddskipunina
velurðu
Spila
.
Til að vinna með raddskipanir flettirðu að aðgerð og velur
Valkost.
.
Í biðstöðu er hægri valtakkanum haldið inni til að nota raddskipanir eða raddhringingar.
Stutt hljóðmerki heyrist og
Tala núna
birtist á skjánum. Segðu þá skipunina eða nafn
þess sem hringja á í. Ef raddkennslin bera árangur birtist listi yfir þær niðurstöður sem
koma til greina. Síminn spilar raddskipun fyrstu niðurstöðunnar á listanum. Ef sú skipun
er ekki rétt skal fletta að annarri niðurstöðu.