Nokia 2690 - Þráðlaus Bluetooth-tækni

background image

Þráðlaus Bluetooth-tækni

Með þráðlausri Bluetooth-tækni er hægt að tengja símann, með útvarpsbylgjum, við

samhæft Bluetooth-tæki sem er í innan við 10 metra fjarlægð (32 fet).
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 + EDR sem styður eftirfarandi snið:

almennur aðgangur, handfrjáls búnaður, höfuðtól, hlutasendingar, skráaflutningur,

upphringisamband, raðtengi, SIM-aðgangur, almennar sendingar á hlutum, háþróuð

dreifing á hljóði, fjarstýring fyrir hljóð og mynd auk almennrar dreifingar á hljóði og

mynd. Til að tryggja samvirkni milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni skal nota

aukabúnað sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá

framleiðendum annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu símans og draga úr endingu

hennar.
Uppsetning Bluetooth-tengingar

Veldu

Valmynd

>

Stillingar

>

Tengi-möguleikar

>

Bluetooth

og fylgdu eftirfarandi

skrefum:
1 Veldu

Nafn símans míns

og sláðu inn heiti fyrir símann.

2 Til að virkja Bluetooth-tengingu velurðu

Bluetooth

>

Kveikja

. sýnir að

Bluetooth-tenging er virk.

3 Til að tengja símann við hljóðaukahlut velurðu

Tengjast við hljóðaukahluti

og

tækið sem þú vilt tengjast.

4 Til að para símann við hvaða Bluetooth-tæki sem er innan svæðisins velurðu

Pöruð

tæki

>

Bæta við tæki

.

Veldu tækið og svo

Bæta við

.

Sláðu inn lykilorð (allt að 16 stafir) á símann til að heimila tengingu við annað

Bluetooth-tæki.

Hafir þú áhyggjur af öryggi skaltu slökkva á Bluetooth-virkninni eða breyta stillingunni

Sýnileiki símans míns

í

Falinn

. Samþykktu aðeins Bluetooth beiðnir frá þeim sem þú

treystir.

Stillingar 19