
SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir
Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en
rafhlaðan er fjarlægð.
SIM-kortið og innihald þess getur hæglega orðið fyrir skemmdum ef það er rispað eða
beygt svo fara skal varlega þegar það er meðhöndlað, sett inn og tekið út.
1 Ýttu á og renndu bakhliðinni að neðsta hluta símans og fjarlægðu hana (1).
2 Fjarlægðu rafhlöðuna (2).
3 Settu SIM-kortið í hölduna þannig að snertiflöturinn snúi niður (3).
4 Komdu rafhlöðunni fyrir (4) og settu bakhliðina á sinn stað (5).