
fíngerðan búnað.
•
Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa tækið. Aðeins skal nota mjúkan,
hreinan og þurran klút til að hreinsa yfirborð tækisins.
Vöru- og öryggisupplýsingar 29

•
Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.
•
Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt loftnet, breytingar á þeim eða
viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að brjóta í bága við ákvæði laga um senditæki.
•
Nota skal hleðslutæki innandyra.
•
Taktu öryggisafrit af gögnum sem þú vilt geyma, t.d. tengiliðum og dagbókaratriðum.
•
Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja þannig hámarksafköst með því að slökkva á tækinu og fjarlægja rafhlöðu
þess.
Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, rafhlöðuna, hleðslutækið eða annan aukabúnað.