
Endurvinnsla
Skilaðu alltaf notuðum raftækjum, rafhlöðum og umbúðum á viðeigandi sorp- og endurvinnslustöð. Þannig geturðu dregið úr
óflokkaðri sorplosun og stuðlað að endurvinnslu. Skoðaðu upplýsingar um umhverfisatriði og endurvinnslu á Nokia-vörum á
www.nokia.com/werecycle eða nokia.mobi/werecycle.
Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu og er á vörunni, rafhlöðunni, bæklingnum eða umbúðunum táknar að fara verður með
allan rafbúnað og rafeindabúnað, rafhlöður og rafgeyma á sérstaka staði til förgunar að líftíma vörunnar liðnum. Þessi krafa á
við innan Evrópusambandsins. Hendið þessum vörum ekki með heimilisúrgangi. Nánari upplýsingar um umhverfismál er að
finna í Eco-yfirlýsingum fyrir vörur á www.nokia.com/environment.