
Neyðarhringingar
Mikilvægt: Þetta tæki notar útvarpsmerki, þráðlaus staðarnet, kapalkerfi og notendaforritaðar aðgerðir. Ef tækið styður símtöl
á internetinu (netsímtöl) skaltu bæði kveikja á farsímanum og á netsímtölum. Tækið reynir bæði að koma á neyðarsímtölum
á farsímakerfinu og um þjónustuveitu netsímtala ef bæði eru valin. Ekki er hægt að tryggja tengingu við allar aðstæður. Því
skyldi aldrei treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.
Neyðarsímtal:
1
Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi. Þú gætir einnig þurft að
ljúka eftirfarandi, allt eftir tækinu þínu:
•
Settu SIM-kort í tækið þitt ef það notar slíkt kort.
•
Eyddu öllum takmörkunum sem þú hefur valið í tækinu þínu.
•
Breyttu sniðinu þínu úr sniði án tengingar eða flugsniði í virkt snið.
2
Ýttu eins oft á endatakkann og þarf til að hreinsa skjáinn og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.
3
Veldu opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.
Vöru- og öryggisupplýsingar 31

4
Styddu á hringitakkann.
Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa tækið getur verið
eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.