
Upplýsingar um vottun (SAR)
Þetta farsímatæki uppfyllir viðmiðunarreglur um áhrif af útvarpsbylgjum.
Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er hannað með tilliti til leyfilegra marka um áhrif af útvarpsbylgjum
sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu vísindastofnuninni ICNIRP og
innihalda öryggismörk sem ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri og heilsufari.
Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur þráðlausra tækja er notuð mælieiningin SAR (Specific Absorption Rate). Efri mörk SAR,
samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP, eru 2,0 vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm af líkamsvef. Mælingar á
SAR eru gerðar í hefðbundnum notkunarstöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða styrk á öllum mældum tíðnisviðum.
Raunverulegur SAR-styrkur tækis í notkun getur verið lægri en hámarksgildið, þar sem tækið er hannað til að nota aðeins þann
styrk sem þarf til að ná sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn, t.d. hversu langt notandinn er frá grunnstöð.
Samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir notkun tækisins við eyra 0,66 W/kg.
Notkun aukahluta og aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið sé annað. SAR-gildi kunna að vera breytileg milli landa sökum
mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og tíðnisviðs. Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um vörur á
www.nokia.com.
32 Vöru- og öryggisupplýsingar

YFIRLÝSING UM SAMKVÆMNI
Hér með lýsir NOKIA CORPORATION því yfir að varan RM-635 er
í samræmi við grunnkröfur og aðrar kröfur sem gerðar eru í
tilskipun 1999/5/EB. Eintak af yfirlýsingu um samkvæmni er
að finna á slóðinni http://www.nokia.com/phones/
declaration_of_conformity/.
© 2009 Nokia. Öll réttindi áskilin.
Nokia, Nokia Connecting People, og Navi eru vörumerki eða
skrásett vörumerki Nokia Corporation. Nokia tune er
tónmerki Nokia Corporation. Önnur vöruheiti eða heiti
fyrirtækja sem nefnd eru hér geta verið vörumerki eða
vöruheiti viðkomandi eigenda.
Hvers konar afritun, yfirfærsla, dreifing eða varðveisla á hluta
skjals þessa eða skjalinu öllu er óheimil nema að fyrirfram
fengnu skriflegu samþykki Nokia. Nokia framfylgir stefnu sem
felur í sér stöðuga þróun. Nokia áskilur sér rétt til að gera
breytingar og úrbætur á hvers konar vöru sem getið er í þessu
skjali án undangenginnar tilkynningar.
Includes RSA BSAFE cryptographic or security protocol
software from RSA Security.
Java is a trademark of Sun Microsystems, Inc.
Þessi vara hefur leyfið MPEG-4 Visual Patent Portfolio License
(i) til einkanotkunar og án viðskiptatilgangs í tengslum við
upplýsingar sem hafa verið kóðaðar samkvæmt staðlinum
MPEG-4 Visual Standard af neytanda í persónulegum tilgangi
og án viðskiptatilgangs og (ii) til notkunar í tengslum við
MPEG-4 hreyfimynd sem fengin er hjá hreyfimyndaveitu með
leyfi. Ekkert leyfi er veitt eða undirskilið til neinnar annarrar
notkunar. Viðbótarupplýsingar, sem varða til dæmis notkun
í auglýsingum, innan fyrirtækis og í viðskiptum, má fá hjá
MPEG LA, LLC. Sjá http://www.mpegla.com.
AÐ ÞVÍ MARKI SEM VIÐEIGANDI LÖG LEYFA SKAL NOKIA EÐA
EINHVERJIR AF LEYFISVEITENDUM ÞESS UNDIR ENGUM
KRINGUMSTÆÐUM BERA SKAÐABÓTAÁBYRGÐ VEGNA TAPS Á
GÖGNUM, TEKJUTJÓNI EÐA Á NEINU SÉRSTÖKU,
TILVILJANAKENNDU, AFLEIDDU EÐA ÓBEINU TJÓNI HVERNIG SEM
ÞAÐ VILL TIL.
INNTAK ÞESSA SKJALS ER AFHENT „EINS OG ÞAÐ KEMUR FYRIR“.
UMFRAM ÞAÐ, ER LÖG ÁSKILJA, ER ENGIN ÁBYRGÐ VEITT, HVORKI
BERUM ORÐUM NÉ UNDIRSKILIN, Á NÁKVÆMNI, ÁREIÐANLEIKA
EÐA INNTAKI ÞESSA SKJALS. Á ÞAÐ MEÐAL ANNARS, EN EKKI
EINGÖNGU, VIÐ UM SÖLUHÆFNI EÐA ÁBYRGÐ Á AÐ VARAN HENTI
TILTEKINNI NOTKUN. NOKIA ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ
ENDURSKOÐA SKJALIÐ EÐA DRAGA ÞAÐ TIL BAKA HVENÆR SEM
ER ÁN UNDANGENGINNAR TILKYNNINGAR.
Framboð á tilteknum vörum, forritum og þjónustu fyrir
þessar vörur getur verið breytilegt eftir svæðum. Kannaðu
það, ásamt tungumálavalkostum, hjá Nokia söluaðila. Tæki
þetta kann að innihalda vörur, tækni eða hugbúnað sem lýtur
útflutningslögum og reglugerðum í Bandaríkjunum og
öðrum löndum. Breytingar á flutningsleiðum sem ekki
samræmast lögum eru óheimilar.
Þau forrit frá þriðju aðilum sem finna má í tækinu kunna að
hafa verið búin til og vera í eigu aðila eða fyrirtækja sem ekki
tengjast Nokia. Nokia á ekki höfundarréttindi eða
hugverkaréttindi að þessum forritum þriðju aðila. Nokia
tekur því hvorki ábyrgð á aðstoð við notendur, virkni þessara
forrita eða þeim upplýsingum sem fylgja forritunum eða
efninu. Nokia veitir enga ábyrgð á þessum forritum þriðju
aðila. MEÐ NOTKUN SINNI VIÐURKENNIR NOTANDINN AÐ
FORRITIN ERU AFHENT EINS OG ÞAU KOMA FYRIR ÁN ÞESS AÐ
NOKKUR ÁBYRGÐ SÉ VEITT, BERUM ORÐUM EÐA ÓBEINT, AÐ ÞVÍ
MARKI SEM HEIMILT ER Í VIÐKOMANDI LÖGUM. NOTANDINN
VIÐURKENNIR JAFNFRAMT AÐ HVORKI NOKIA NÉ TENGD FÉLÖG
VEITA NOKKURS KONAR FYRIRSVAR EÐA ÁBYRGÐ, BERUM ORÐUM
EÐA ÓBEINT, ÞAR Á MEÐAL EN EKKI EINGÖNGU ÁBYRGÐ Á
EIGNARRÉTTI, SÖLUHÆFNI EÐA HÆFNI TIL TILTEKINNAR
NOTKUNAR, EÐA ÞVÍ AÐ FORRITIN BRJÓTI EKKI GEGN
EINKARÉTTI, HÖFUNDARRÉTTI, VÖRUMERKJARÉTTI EÐA ÖÐRUM
RÉTTINDUM ÞRIÐJA AÐILA.
TILKYNNING FRÁ FCC/INDUSTRY CANADA
Tækið þitt getur valdið truflunum á sjónvarpi eða útvarpi (til
dæmis þegar sími er notaður nálægt viðtökutæki). FCC eða
Industry Canada geta krafist þess að þú hættir að nota símann
ef ekki er hægt að koma í veg fyrir slíkar truflanir. Ef þú þarft
aðstoð skaltu hafa samband við þjónustuaðila í nágrenni við
þig. Þetta tæki er í samræmi við 15. hluta af reglum FCC.
Notkun þess er háð eftirfarandi tveimur skilyrðum: (1) Tækið
má ekki valda skaðlegum truflunum; og (2) tækið verður að
taka við öllum truflunum sem það verður fyrir, þ.m.t.
truflunum sem geta valdið óæskilegri virkni þess. Sérhverjar
breytingar sem Nokia hefur ekki samþykkt berum orðum geta
ógilt heimild notandans til notkunar búnaðarins.
33
/Útgáfa 2.1 IS